Fara yfir á efnisvæði

Notkun á orðinu "fríhafnardagar" í auglýsingum ekki brot

04.11.2011

Neytendastofu barst kvörtun frá Fríhöfninni ehf. vegna auglýsinga Hagkaupsverslana á „fríhafnardögum“ sem birst hafa í fjölmiðlum, þar sem Fríhöfnin ehf. taldi að með notkun orðsins væri Hagkaup að nota firmaheiti Fríhafnarinnar.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að orðið fríhöfn væri almennt íslenskt orð og skráning fyrirtækis með því heiti, með eða án greinis, hamlaði ekki notkun annarra á orðinu. Í auglýsingum Hagkaups kemur skýrt fram hvað átt sé við með orðinu „fríhafnardagar“ auk þess sem tengingin við Hagkaup fer ekki á milli mála. Neytendastofa telur því að birting auglýsingarinnar valdi ekki ruglingi á milli Hagkaups og Fríhafnarinnar.

Ákvörðun 65/2011 má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA