Fara yfir á efnisvæði

RARIK fær viðurkenningu til innra eftirlits með raforkumælum

14.06.2011

Fréttamynd

Raforkumælar eru samkvæmt lögum undir opinberu eftirliti Neytendastofu. Reikningar fyrir rafmagnsnotkun verða að vera réttir og mælarnir í lagi. Löggilding mælitækis felur í sér staðfestingu Neytendastofu að mælirinn mæli rétt. Almenna reglan er að mælitæki, sem notuð eru í viðskiptum, ber að löggilda og eru þau þá undir eftirliti Neytendastofu. Í lögum sem samþykkt voru á Alþingi árið 2006 var í fyrsta sinn veitt heimild fyrir því að fyrirtæki sem selja vöru eða þjónustu geti sett upp eigið innra eftirlitskerfi vegna mælinga sem sé jafngildi löggildingu frá Neytendastofu.
Neytendastofa og RARIK eru sammála um að innra eftirlit sé hagkvæm leið fyrir umsýslu mæla og eftirlit með mælingum, sem neytendur geta treyst. RARIK er nú önnur dreifiveitan á landinu  sem hefur sett upp innra gæðakerfi á grundvelli reglna frá Neytendastofu og mun framvegis taka ríkari ábyrgð á framkvæmd mælinga fyrirtækisins. Innra eftirlitið er tekið út árlega af hálfu Neytendastofu. Við innra eftirlit er notuð er sérstök úrtaksaðferð við val á mælum til prófunar hjá óháðri faggiltri prófunarstofu.  Öll gögn um úttektir og prófanir mæla eru aðgengilegar fyrir Neytendastofu.

Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu afhenti 1. júní s.l. Tryggva Þór Haraldssyni forstjóra RARIK formlega heimild til innra eftirlits með raforkumælum.

TIL BAKA