Fara yfir á efnisvæði

Endurmenntunarnámskeið

15.01.2010

Endurmenntunarnámskeið til endurlöggildingar vigtarmanna verður haldið í  Borgartúni 21 í Reykjavík 25. janúar n.k.

Skráning á námskeiðið fer fram á heimasíðu Neytendastofu www.neytendastofa.is undir hlekknum „Skráning á námskeið“ (ekki þörf á innskráningu) eða undir Mælifræðisvið.

Athygli er vakin á því að gerðar eru kröfur um íslenskukunnáttu þar sem öll kennsla fer fram á íslensku og bæði eru skriflegar spurningar á prófi á íslensku og þeim þarf að svara á íslensku.

Löggildingar vigtarmanna gilda í 10 ár frá útgáfu skírteina.

Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu Neytendastofu, svo og aðstoð við skráningu þátttakenda, eru veittar í síma 510 1100.

Skráningu lýkur 20. janúar nk.

TIL BAKA