Hættulegir gashitarar
21.09.2005
Neytendastofa vekur athygli á innköllun Olíufélagsins á Outback gashiturum seldum á þessu ári.  Í ljós hefur komið að galli getur verið í samsetningu á rofa gashitarans þannig að ekki lokast sjálfkrafa fyrir gasið ef hitarinn fellur um koll.  
Tegund vöru:  Gashitari.
Vörumerki:      Outback.
Þekktir söluaðilar hér á landi:  Olíufélagið og Húsasmiðjan.
Hætta:  Ekki lokast sjálfkrafa fyrir gasstreymi til hitarans ef hann fellur um koll. 
Hvað eiga kaupendur að gera? Þeir sem keyptu Outback gashitara í sumar eiga að hætta að nota gashitarana þegar í stað og hafa samband við Þjónustuver Olíufélagsins í síma 560 3400 til þess að ganga úr skugga um hvort þeirra gashitari sé gallaður.
