Fara yfir á efnisvæði

Ársskýrsla markaðseftirlits raffanga fyrir árið 2005

18.04.2006

Neytendastofa annast opinbera markaðsgæslu raffanga. Hún fylgist með rafföngum á markaði, aflar á skipulegan hátt upplýsinga um þau og tekur við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.

Faggiltar skoðunarstofur annast í umboði Neytendastofu framkvæmd skoðana á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók Neytendastofu. Frá árinu 2003 hefur Aðalskoðun hf annast þessar skoðanir fyrir hönd Neytendastofu og á eftirfarandi hlekk má nálgast ársskýrslu hennar fyrir árið 2005.

Ársskýrsla Aðalskoðunar 2005.

 

TIL BAKA