Fara yfir á efnisvæði

22 nýútskrifaðir vigtarmenn

01.06.2011

Fréttamynd

Námskeið til löggildingar og endurlöggildingar vigtarmanna voru haldin í Reykjavík fyrstu dagana í maí. Góð mæting var á námskeiðin því 22 mættu á löggildingarnámskeiðið og 12 á endurmenntunarnámskeiðið.

Farið er yfir lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, reglur um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna og reglugerð um löggildingarskyldu mælitækja í notkun. Jafnframt var farið yfir reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með ósjálfvirkum vogum, reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja og reglugerð um ósjálfvirkar vogir, reglugerð um mælieiningar og að auki reglugerð um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/22 um mælitæki. Áhersla er svo einnig lögð á lög og reglugerðir um efni sem tengist vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur koma m.a. frá Neytendastofu og Fiskistofu. Námskeiðin eru haldin í húsnæði Neytendastofu í Borgartúni 21.

Námskeiðin hafa verið haldin þrisvar sinnum á ári og verður næsta löggildingarnámskeiðið haldið í október 2011.

Á heimasíðu stofnunarinnar er hægt að fá upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin og fleira er þeim tengist eins og tímasetningar næsta námskeiðs og þar er einnig hægt að innrita sig á námskeið. Nánar verður fjallað um endurmenntunarnámskeiðin síðar.

TIL BAKA