Fara yfir á efnisvæði

Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfestir ákvörðun Neytendastofu

01.10.2009

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurðum sínum nr. 9/2009 staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 6/2009. 

Að mati Neytendastofu braut Kaupþing banki hf. gegn ákvæðum 6. og 9. gr. laga um neytendalán, nr. 121/1994, vegna skilmála bankans á lánum í erlendri mynt. Með ákvörðun nr. 6/2009 bannaði Neytendastofa Kaupþing banka hf. því notkun samningsskilmála um breytilega vexti á neytendalánum. 

Í skilmálum bankans segir m.a. í 1. gr.:

„Í vexti af höfuðstól skuldar þessarar eins og hann er á hverjum tíma, ber skuldara að greiða breytilega vexti eins og þeir eru ákveðnir að Kaupþingi Búnaðarbanka hf. á hverjum tíma og tekur það jafnt til kjörvaxta hverrar myntar og vaxtaálags. Kaupþingi Búnaðarbanka hf. er heimilt að breyta vöxtum á 3ja mánaða fresti til samræmis við þá vexti sem gilda gagnvart nýjum sambærilegum og/eða hliðstæðum lánum.“

Neytendastofa telur framangreindan samningsskilmáli ekki uppfylla ákvæði 9. gr. laga um neytendalán þar sem ekki komi fram með hvaða hætti vextirnir séu breytilegir og við hvaða aðstæður þeir breytist. Kaupþing hefur því ekki gefið lántaka nægar upplýsingar um vexti, sbr. 3. tölul. 6. gr. sömu laga.

Sjá úrskurð áfrýjunarnefndar neytendamála nr. 9/2009

TIL BAKA