Fara yfir á efnisvæði

Innköllun á UVEX reiðhjálmum

26.08.2013

Fréttamynd

Neytendastofa vekur athygli á innköllun á UVEX reiðhjálmum af gerðinni Exxential (áður Uvision) sem seldir hafa verið hjá Lífland frá árinu 2010. Framleiðandinn, UVEX er auk þess að innkalla tvær aðrar tegundir, Uvision Elegance og Supersonic Elegance.  Hjálmarnir hafa þegar verið teknir úr sölu.

Ástæða innköllunar er sú að þeir uppfylla ekki staðla um viðnám gegn því að eitthvað stingist í gegnum þá og/eða um höggþol. Einhverjir hjálmar eru ekki gallaðir en framleiðandinn tekur ekki áhættu og innkallar því alla hjálma af fyrrnefndum gerðum (óháð framleiðslulotu).

Þeir sem eiga reiðhjálm af gerðinni Exxential (áður Uvision), eru vinsamlegast beðnir um að hætta notkun hans undir eins og koma með þá aftur í verslun Líflands þar sem þeir fá annað hvort a.m.k. sambærilegan hjálm eða endurgreitt að fullu.

Samkvæmt tilkynningu frá Líflandi þá er hægt að hafa samband við Uvex í síma: +49 911 9774-0 ef þú hefur einhverjar spurningar. Einnig veitir starfsfólk í verslunum Líflands svör við spurningum.

 

TIL BAKA