Fara yfir á efnisvæði

OR heimilt að nota lénið orkusala.is

29.12.2010

Orkusalan kvartaði við Neytendastofu yfir skráningu og notkun OR á léninu orkusala.is þar sem það væri til þess fallið að valda ruglingi milli fyrirtækjanna.

Neytendastofa taldi orðið orkusala mjög almennt og lýsandi fyrir starfsemi aðilanna. Orkusalan gæti ekki notið einkaréttar á orðinu. OR var því ekki bönnuð notkun á léninu.

Ákvörðun nr. 54/2010 má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA