Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa kannar veitingahús á höfuðborgarsvæðinu

15.08.2013

Í júlí sl. fóru fulltrúar Neytendastofu á 97 veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að athuga hvort farið væri eftir reglum um verðmerkingar. Skoðað var hvort matseðill með verðupplýsingum væri við inngöngudyr og  hvort magnupplýsingar drykkja kæmu fram.

Veitingahúsum ber að hafa matseðil með verði við inngöngudyr sínar svo neytendur geti kynnt sér vöruúrval og verð áður en þeim er vísað til borðs. Í flestum tilvikum var matseðill við inngang eða á 92 veitingastöðum af 97. Þeir fimm staðir sem ekki höfðu matseðil við inngang voru Kopar, Lebowski Bar, Sushi samba, Íslenska hamborgarafabrikkan og Grillhúsið á Sprengisandi.

Erfitt getur verið að átta sig á verðinu ef magns er ekki getið.  Til þess að neytendur geti betur áttað sig á verðinu á að gefa upp magn á drykkjarföngum hvort sem það er í flösku eða glasi, auk verðs.  Á  14 veitingastöðum vantaði magnupplýsingar á verðskrá drykkja.

Einnig var skoðað hvort að vínmálin væru löggilt og þar af leiðandi að mæla rétt, niðurstöður þeirra skoðunar verða birtar síðar.

Neytendastofa hvetur neytendur til að vera á verði og koma ábendingum til skila í gegnum rafræna neytendastofu á vefslóðinni www.neytendastofa.is.

TIL BAKA