Fara yfir á efnisvæði

Markaðssetning á Andrex salernispappír

21.10.2016

Neytendastofu barst erindi Papco hf. þar sem kvartað var yfir markaðssetningu keppinautarins John Lindsay hf. á Andrex salernispappír. Taldi Papco að slagorðið „meira á hverri rúllu“ og merking á 12 rúllu umbúðum salernispappírsins með orðunum „3 rolls free“ væru villandi gagnvart neytendum. Þá taldi Papco að skjáauglýsingar John Lindsay væru villandi því þar kæmi ekki fram söluverð salernispappírsins.

Neytendastofa taldi að fullyrðingin „meira á hverri rúllu“ hefði fullnægjandi stoð í gögnum sem lögð voru fram í málinu. Hún væri því sönnuð og ekki villandi gagnvart neytendum. Neytendastofa taldi einnig að þar sem John Lindsay selji til smásala 9 rúllu pakkningar á sama verði og 12 rúllu pakkningar hafi félagið gert viðeigandi ráðstafanir til þess að smásölum væri unnt að standa við fullyrðinguna „3 rolls free“. Þá kemur fram í ákvörðun Neytendastofu að þar sem John Lindsay er heildsali og seldur vörur sínar ekki beint til neytenda hafi fyrirtækið ekki getað gefið upp verðupplýsingar í auglýsingum enda séu verð mismunandi milli verslana. Neytendastofa taldi því ekki ástæðu til aðgerða í málinu.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA