Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu felld úr gildi

10.11.2022

Neytendastofa tók ákvörðun um að kynning Costco á endurnýjun aðildar væri villandi. Í skilmálum Costco um endurnýjun aðildar kemur fram að endurnýjun sé fyrir 12 mánaða tímabil miðað við upphaflega skráningu, aðild sem sé endurnýjuð innan tveggja mánaða frá því að núverandi aðild rann út, verði endurnýjuð í 12 mánuði frá því að gildistíminn rann út en að aðild sem sé endurnýjuð tveimur mánuðum eða seinna, eftir að hún rennur út, verði framlengd um 12 mánuði frá dagsetningu endurnýjunar.

Taldi Neytendastofa kynningu félagsins á endurnýjun aðildar villandi, ósanngjarna í garð neytenda og til þess fallna að að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Hinn almenni neytandi muni ekki gera sér grein fyrir umræddum fyrirvörum á gildistíma enda alla jafna talað um árlegt aðildargjald og 12 mánaða gildistíma og ekki gerð grein fyrir þessum skilmála í kynningarefni aðildarinnar.

Costco kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem hefur nú fellt hana úr gildi. Nefndin taldi skilmála endurnýjunar skýra um skilyrði þeirra og í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið vísað til kynningar- eða markaðsefni þar sem gefið væri í skyn aðrir skilmálar. Þá kom fram í gögnum Costco til áfrýjunarnefndar að við endurnýjun gætu neytendur valið milli þess að endurnýja eldri aðildar þar sem endurnýjunardagsetning sé sú þegar aðild rann út eða að taka nýja aðild þar sem dagsetning miðast við nýjan samningsdag. Taldi nefndin því ekki sýnt fram á að viðskiptahættir Costco væru villandi eða í andstöðu við ákvæði laga um óréttmæta viðskiptahætti.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA