Fullyrðingar um virkni sveppadropa og -dufts
Neytendastofu hafði til skoðunar fullyrðingar Hemmett ehf., rekstraraðila Hugur Studio, um virkni sveppadropa og sveppadufts sem félagið býður til sölu.
Neytendastofa óskaði eftir sönnunum fyrir fullyrðingum sem birtar voru á vefsíðu félagsins þar sem því var m.a. haldið fram að vörurnar framkölluðu ró, bættu svefngæði, lækki kortisól og þar með streitustig, styðji við ónæmiskerfið og frumur líkamans með andoxunarefnum og dragi jafnvel úr áhrifum ADHD og lyfjaþörf, svo dæmi séu tekin.
Félagið dró úr fullyrðingunum undir meðferð málsins. Ekki voru þó veitt fullnægjandi sönnunargögn fyrir fullyrðingunum sem stofnunin taldi afdráttarlausar varðandi virkni varanna og þann árangur sem vænta mætti af notkun þeirra.
Taldi Neytendastofa fullyrðingarnar veita rangar upplýsingar um helstu einkenni varanna sem væru líklegar til að valda því að hinn almenni neytandi tæki viðskiptaákvörðun sem hann myndi ekki annars hafa tekið. Fullyrðingarnar væru því líklegar til að raska verulega fjárhagslegri hegðun neytanda. Þá taldi Neytendastofa að með birtingu fullyrðinga um virkni sveppadropa og -dufts hafi félagið haldið því ranglega fram að vörurnar geti læknað sjúkleika eða röskun á líffærastarfsemi.
Taldi stofnunin hæfilegt að sekta félagið um 100.000 kr. vegna brota sinna.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér