Fara yfir á efnisvæði

Fullyrðingar og upplýsingagjöf ST. Import á vefsíðunni snjalltaeki.store

03.03.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart ST. Import ehf., rekstraraðila vefsíðunnar snjalltaeki.store. Ákvörðunin snýr að fullyrðingum um virkni og eiginleika vara, auglýstum afsláttum, óljósum samanburði og skorti á upplýsingum.

Engin svör bárust frá ST. Import á meðan á málsmeðferð stóð þrátt fyrir ítrekanir. Fyrirtækið hefur því ekki sannað fullyrðingar sínar eða sýnt fram á að afsláttur sé raunverulegur. Þá hafa ekki verið gefnar skýringar á eða bætt úr óskýrum og ófullnægjandi upplýsingum sem neytendur eiga rétt á fyrir samningsgerð.

Neytendastofa bannaði ST. Import að viðhafa framangreinda viðskiptahætti auk þess að beina þeim fyrirmælum til ST. Import að bæta upplýsingagjöf og skilmála sína til samræmis við ákvörðunina. Þar sem stofnunin taldi brotin alvarleg, beinast að mjög breiðum hópi og fela í sér viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir var fyrirtækið sektað um tvær milljónir króna.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA