Fara yfir á efnisvæði

Skilmálar og upplýsingagjöf Michelsen

27.04.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Michelsen vegna skilmála og upplýsingagjöf félagsins á vefsíðunni michelsen.is.

Í erindi stofnunarinnar voru gerðar athugasemdir við fjölda atriða vegna upplýsingagjafar og skilmála Michelsen sem samræmdust ekki lögum, s.s. varðandi réttinn til að falla frá samningi, skilyrði þess að falla frá samningi og upplýsingar um lögbundin réttindi neytenda og úrræði vegna galla. Á meðan á málsmeðferð stóð voru gerðar ýmsar breytingar sem voru þó ekki fullnægjandi. Var þeim fyrirmælum beint til félagsins að bæta upplýsingagjöf og skilmála sína til samræmis við ákvörðunina.

Michelsen hefur nú þegar brugðist við ákvörðun stofnunarinnar og breytt skilmálum til samræmis við ákvörðunina.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér

TIL BAKA