Auglýsingar Happyworld á fisflugi bannaðar.
Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Happyworld sem birt var 24. janúar 2025. Í kjölfar birtingar ákvörðunarinnar bárust Neytendastofu athugasemdir frá félaginu og féllst stofnunin með vísan til 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á beiðni félagsins um endurupptöku á fyrrgreindri ákvörðun.
Neytendastofa hefur nú að nýju tekið ákvörðun gagnvart Happyworld ehf. vegna auglýsinga á fisflugi. Upphaflegt mál Neytendastofu hófst með ábendingu frá Samgöngustofu þar sem tekið var fram að óheimilt væri að fljúga fisi nema til skemmtunar og íþrótta. Þá er einnig óheimilt að fljúga fisi í atvinnuskyni, til flutninga- og verkflugs, sem og til annarra starfa að frátöldu flugi til kennslu, þjálfunar og próftöku. Í umræddum auglýsingum félagsins, sem birtust á fjölda vefsíðna sem bjóða upp á ferðir til ferðamanna, var hins vegar boðið upp á útsýnisflug með fisi gegn gjaldi sem samkvæmt framangreindu er óheimilt.
Í svörum Happyworld kom fram að félagið starfi á sviði kennslu í sportflugi og að félagið bjóði eingöngu upp á kynningar- og kennsluflug. Þá geti félagið ekki borið ábyrgð á því hvernig endursöluaðilar setji upp eða orði auglýsingar.
Niðurstaða Neytendastofu var að sýnt hafi verið fram á með gögnum að Happyworld hafi boðið upp á útsýnisflug, gegn gjaldi, á vélknúnu fisi. Neytendastofa bannaði Happyworld því að auglýsa útsýnisflug á fisi gegn gjaldi. Með hliðsjón af eðli þeirra auglýsinga sem um ræddi, útbreiðslu þeirra, og að félagið braut gegn viðskiptaháttum sem teljast í öllum tilvikum óréttmætir lagði Neytendastofa stjórnvaldsekt að fjárhæð 400.000 kr. á Happyworld.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.