Fara yfir á efnisvæði

Frávísun Neytendastofu staðfest

18.06.2026

Neytendastofa vísaði erindi Snjalltækja ehf. frá án efnislegrar meðferðar og neitaði félaginu um aðild að máli stofnunarinnar vegna viðskiptahátta ST. Import ehf. Í erindinu var annars vegar kvartað yfir notkun ST Import ehf. á auðkenninu Snjalltæki og hins vegar kvartað yfir viðskiptaháttum ST. Import ehf. á vefsíðu þess. Þeim hluta erindisins sem snéri að notun auðkennisins Snjalltæki var vísað frá með vísan til þess að áhersla skuli lögð á mál sem býnust þyki fyrir heildarhagsmuni neytenda. Þá var félaginu neituð aðild að máli vegna viðskiptahátta ST. Import ehf. á þeim grundvelli að félagið hefði ekki slíka hagsmuni af úrlausn málsins að þeir gengju framar hagsmunum annarra, sbr. 2. gr. reglugerðar um málsmeðferð Neytendastofu.

Snjalltæki kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem fjallaði meðal annars um það að Neytendastofu sé veitt vítt svigrúm til mats á því hvort erindi gefa næga ástæðu til meðferðar. Féllst nefndin á það mat Neytendastofu að þetta mál hafi ekki svo mikil áhrif á heildarhagsmuni neytenda að stofnuninni sé mögulegt að vísa málinu frá án efnislegrar meðferðar. Var ákvörðun um frávísun því staðfest.

Að því er varðar aðild að máli vegna viðskiptahátta ST. Import ehf. féllst nefndin á þá afstöðu Neytendastofu að Snjalltæki hefði ekki beina, sérstaka, verulega og lögvarða hagsmuni af máli sem snúi að tilboðum og fullyrðingum á vefsíðu ST. Import ehf. og því hafi stofnuninni verið heimilt að neita félaginu um aðild að máli sem leiddi til ákvörðunar nr. 1/2026.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA