Orkan sektuð fyrir brot gegn ákvörðun Neytendastofu
13.11.2026
Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Orkunni IS ehf. í september 2021 vegna fullyrðinga um lægsta og ódýrasta eldsneyti landsins. Niðurstaða Neytendastofu í málinu var að félagið hafi viðhaft villandi og óréttmæta viðskiptahætti og var félaginu bönnuð birting fullyrðinganna.
Stofnunin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að birting Orkunnar á ósönnuðum fullyrðingum þar sem vísað er til lægsta verðsins hafi brotið gegn banni því er ákvörðun Neytendastofu nr. 30/2021 kveður á um.
Neytendastofa taldi tilefni til að sekta Orkuna um 1.300.000 kr. fyrir brotið.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér