Fara yfir á efnisvæði

Brot Stjörnugríss gegn ákvörðun Neytendastofu

27.03.2024

Neytendastofa hefur lagt 500.000 kr. stjórnvaldssekt á Stjörnugrís hf. fyrir brot gegn ákvörðun stofnunarinnar um bann við að nota þjóðfána Íslendinga á umbúðum matvöru úr innfluttu hráefni. Með fyrri ákvörðuninni var Stjörnugrís bannað að nota þjóðfána Íslendinga utan á umbúðum matvara sem áttu uppruna að rekja til annarra ríkja en Íslands. Stjörnugrís braut gegn ákvörðuninni með því að nota brot úr þjóðfána íslendinga utan á umbúðum fyrir grísarif sem voru innflutt frá Þýskalandi.

Neytendastofa taldi nauðsynlegt að leggja stjórnvaldssekt á fyrirtækið fyrir brot gegn fyrri ákvörðun.

Ákvörðunina með lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA