Fara yfir á efnisvæði

Árleg hlutfallstala kostnaðar - ÁHK

ÁHK er prósentutala þar sem vextir og lántökukostnaður er mældur á ársgrundvelli og sýnir þannig árlegan kostnað af láninu í einni prósentutölu. Neytendur geta borið saman þessa einu tölu og fundið út hvaða lánveitandi er með hagkvæmast lánstilboðið.

ÁHK má ekki vera hærri en 35% að viðbættum stýrivöxtum.

Áður en lán er tekið er mikilvægt að bera saman þá lánamöguleika sem bjóðast, s.s. í verslun og banka, og nýtist ÁHK vel til þess. Þar sem árleg hlutfallstala kostnaðar er lægst er hagstæðasta lánið að finna.

Dæmi um ákvarðanir Neytendastofu vegna útreiknings ÁHK:

Úrskurður í máli nr. 14/2014, kæra Neytendalána ehf. á ákvörðun Neytendastofu nr. 29/2014 

Úrskurður í máli nr. 13/2014, kæra Kredia ehf. og Smálána ehf. á ákvörðun Neytendastofu nr. 28/2014

Dæmi um ákvörðun Neytendastofu vegna tilgreiningar ÁHK við markaðssetningu:

Ákvörðun nr. 49/2015, Upplýsingar um neytendalán á vefsíðu Heimkaup

Ákvörðun nr. 48/2015, Upplýsingar um neytendalán á vefsíðu Elko

TIL BAKA